Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 167 . mál.
Ed.
701. Breytingartillögur
við frv. til l. um Námsgagnastofnun.
Frá menntamálanefnd.
1. Við 1. gr.
a. 1. mgr. orðist svo:
Hlutverk Námsgagnastofnunar er að sjá grunnskólum fyrir sem bestum náms- og kennslugögnum sem eru í samræmi við uppeldis- og kennslufræðileg markmið laga um grunnskóla og aðalnámsskrár.
b. Á undan orðinu „framhaldsskóla“ í 2. mgr. komi: tónlistarskóla og.
2. Við 2. gr.
a. Í stað orðanna „níu manna námsgagnastjórn“ í fyrri málsgrein komi: sjö manna námsgagnastjórn.
b. a-liður fyrri málsgreinar orðist svo:
einn fulltrúa tilnefndan af Félagi skólastjóra og yfirkennara.
c. b-liður fyrri málsgreinar orðist svo:
tvo fulltrúa tilnefnda af Kennarasambandi Íslands og skulu þeir starfa á grunnskólastigi.
d. c-liður fyrri málsgreinar orðist svo:
einn fulltrúa tilnefndan af Hinu íslenska kennarafélagi og skal hann starfa á framhaldsskólastigi.
e. d-liður fyrri málsgreinar orðist svo:
einn fulltrúa tilnefndan af Kennaraháskóla Íslands.
f. Við greinina bætist ný málsgrein er orðist svo:
Ef stofnuð verða landssamtök foreldrafélaga skal þeim heimilt að tilnefna einn áheyrnarfulltrúa í námsgagnastjórn með málfrelsi og tillögurétti.
3. 8. gr. falli brott.