Ferill 403. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 403 . mál.


Ed.

1049. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 51 29. maí 1981, um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum í plöntum.

Frá landbúnaðarnefnd.



    Nefndin hefur athugað frumvarpið. Fjallar það um innheimtu sérstaks gjalds af öllum innfluttum plöntum til að standa straum af kostnaði við eftirlit með slíkum innflutningi. Komu eftirtaldir á fund nefndarinnar: Sigurgeir Ólafsson og Þorsteinn Tómasson frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Bjarni Helgason og Kjartan Ólafsson frá Félagi garðyrkjubænda, Sigurður Moritzson frá Blómamiðstöðinni hf., Bjarni Finnsson frá Brum hf., Valdimar Jónasson frá Sölufélagi garðyrkjumanna, Kolbeinn Ágústsson frá Hagkaupum hf. og Þórarinn V. Þórarinsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands.
    Nefndin leggur til að gildistökuákvæði þessa lagafrumvarps verði frestað til 1. janúar 1991. Jafnframt leggur nefndin áherslu á að við álagningu eftirlitsgjalds þess er frumvarpið fjallar um, 1. janúar 1991, verði kappkostað að halda gjaldinu í lágmarki til þess að það hafi ekki áhrif á þróun vöruverðs í landinu.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
    Þorvaldur Garðar Kristjánsson var fjarverandi afgreiðslu málsins.

Alþingi, 25. apríl 1990.



Skúli Alexandersson,


form., frsm.


Egill Jónsson,


fundaskr.


Danfríður Skarphéðinsdóttir.


Valgerður Sverrisdóttir.


Karvel Pálmason.


Jón Helgason.