Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 680. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1368  —  680. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 33 16. apríl 2002, um eldi nytjastofna sjávar.

Frá sjávarútvegsnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Snorra Rúnar Pálmason og Guðríði Margréti Kristjánsdóttur frá sjávarútvegsráðuneyti.
    Tilgangur frumvarpsins er að innleiða í íslenskan rétt tilskipun 91/67/EBE, um skilyrði á sviði heilbrigðis dýra sem hafa áhrif á markaðssetningu fiskeldistegunda og -afurða, sem íslensk stjórnvöld skuldbundu sig til með undirritun EES-samningsins. Eitt meginmarkmið tilskipunarinnar er að samræma eftirlit og kveður hún á um nánari skilgreiningu þeirra heilbrigðisskilyrða sem þarf að uppfylla svo milliríkjaviðskipti geti átt sér stað með lifandi eldisdýr innan og utan EES. Meginreglan samkvæmt tilskipuninni er sú að inn- og útflutningur fyrrgreindra afurða innan EES er heimill, enda sé heilbrigði dýra og afurða vottað af opinberum eftirlitsaðilum, hérlendis embætti yfirdýralæknis.
    Í umfjöllun nefndarinnar kom fram að engar reglur séu í gildi um innflutning á dýrum þar sem bráðabirgðaákvæði laga um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, nr. 55/1998, sem kvað á um að sjávarútvegsráðherra skyldi veita leyfi, að uppfylltum ákveðnum skil yrð um, fyrir innflutningi lifandi fiska, skrápdýra, liðdýra eða lindýra sem lifa í söltu vatni gilti ein ungis til 31. desember 2002 . Með innleiðingu tilskipunarinnar fæst nauðsynlegt stjórntæki til að gæta þess að innflutningur á sjávardýrum til eldis verði í samræmi við reglur á Evrópska efnahagssvæðinu og að einungis verði flutt inn eldisdýr sem eru laus við sjúkdóma sem ekki fyrirfinnast hér á landi.
    Til að tryggja óbreytt heilbrigðisástand hafa fisksjúkdómayfirvöld óskað eftir viðbótartryggingu gagnvart alvarlegustu sjúkdómum, en sú trygging kveður á um sérstakar heimildir stjórnvalda til að verjast smitsjúkdómum á öflugri hátt en ella og takmarka innflutning frá löndum þar sem þeir finnast. Eru því miklir hagsmunir í húfi fyrir heilbrigði íslenskra fiskistofna. Formleg staðfesting ESA þess efnis fæst þó ekki fyrr en eftir innleiðingu tilskipunarinnar.
    Þá kom einnig fram að lögfesting tilskipunarinnar er til þess fallin að bæta stöðu útflutningsgreina með því að geta sýnt fram á að svæðið uppfylli EES-reglur og sé laust við sjúkdóma fáist gæðastimpill á útflutningsvörur.
    Nefndin telur málið mjög þarft og mælir með því að það verði samþykkt óbreytt.
    Guðmundur Hallvarðsson var fjarverandi við afgreiðslu máls þessa.
    Árni Steinar Jóhannsson sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu með fyrirvara.

Alþingi, 12. mars 2003.



Árni R. Árnason,


form., frsm.


Kristinn H. Gunnarsson.


Einar K. Guðfinnsson.



Adolf H. Berndsen.


Hjálmar Árnason.


Jóhann Ársælsson,


með fyrirvara.



Svanfríður Jónasdóttir,


með fyrirvara.


Guðjón A. Kristjánsson,


með fyrirvara.