Ferill 288. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 292 — 288. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um hlutfall þjóðarframleiðslu fyrirtækja og félaga sem gera upp í öðrum gjaldmiðli en krónu.
Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
1. Hver var velta þeirra fyrirtækja og félaga, í einkarekstri sem og opinberum rekstri, sem fengu árið 2022 og 2023 heimild hjá ársreikningaskrá skv. 7. gr. laga um ársreikninga til að færa bókhaldsbækur í erlendum gjaldmiðli og semja og birta ársreikninga í erlendum gjaldmiðli í stað íslenskrar krónu?
2. Hversu stór hluti af þjóðarframleiðslu var velta þessara fyrirtækja og félaga á sama tímabili?
3. Hver hefur þróunin verið sl. áratug hvað varðar hluta af þjóðarframleiðslu þessara fyrirtækja og félaga?
Skriflegt svar óskast.