Ferill 432. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 453 — 432. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um kæfisvefnsrannsóknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvað er hægt að framkvæma margar kæfisvefnsrannsóknir í senn á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) annars vegar og Landspítala hins vegar og hvað var greitt fyrir margar slíkar rannsóknir á ári hverju síðastliðin fimm ár á hvorri stofnun fyrir sig?
2. Hvaða stofnanir framkvæma kæfisvefnsrannsóknir?
3. Hversu margir einstaklingar fara á Landspítala af upptökusvæði SAk í kæfisvefnsrannsóknir?
4. Hversu hár er kostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna þeirra sem fara á Landspítala en gætu annars farið á SAk?
5. Má gera ráð fyrir því að kostnaður einstaklings á upptökusvæði SAk sem fer í kæfisvefnsrannsókn á Landspítala sé meiri en ef viðkomandi fengi þjónustu á SAk? Ef svo er, hversu miklu munar í kostnaði?
Skriflegt svar óskast.