Ferill 1047. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1526  —  1047. mál.




Fyrirspurn


til matvælaráðherra um slátrun húsdýra og þjónustu erlendra sérfræðinga.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Að hve miklu leyti er slátrun húsdýra háð þjónustu erlendra sérfræðinga?
     2.      Er unnið að því í ráðuneytinu að gera slátrun húsdýra óháða þjónustu erlendra sérfræðinga?
     3.      Stýrist tímasetning slátrunar af því hvenær þjónusta erlendra sérfræðinga er í boði? Ef svo er, að hve miklu leyti?


Skriflegt svar óskast.