Ferill 950. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1559  —  950. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um breytta stjórnsýsluframkvæmd vegna umsókna um fjölskyldusameiningu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða málefnalegu sjónarmið lágu að baki ákvörðun um að breyta stjórnsýsluframkvæmd Útlendingastofnunar fyrirvaralaust með þeim hætti að láta umsóknir um fjölskyldusameiningu frá palestínskum ríkisborgurum ekki lengur njóta forgangs hjá stofnuninni, sbr. tilkynningu á vef hennar 11. mars 2024?

    Umbeðin sjónarmið eru rakin í tilkynningu Útlendingastofnunar. Líkt og þar greinir höfðu umsóknir palestínskra ríkisborgara um fjölskyldusameiningu notið forgangs hjá Útlendingastofnun frá um miðjum október 2023. Forgangurinn hafi falist í því að umsóknirnar voru teknar fram fyrir umsóknir um sömu leyfi frá ríkisborgurum annarra ríkja, sem fyrir vikið færðust aftar í röðina. Þegar sú ákvörðun hafi verið tekin biðu afgreiðslu hjá stofnuninni um 150 umsóknir um fjölskyldusameiningu frá palestínskum ríkisborgurum, þar af um helmingur umsóknanna eldri en sex mánaða gamall. Frá október 2023 hafi 280 dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar við flóttamenn á Íslandi verið veitt, þar af 160 til ríkisborgara Palestínu og 120 til annarra ríkisborgara, einkum Sýrlendinga, Venesúelabúa og Sómala. Þá segir í tilkynningu Útlendingastofnunar að um 20 umsóknir um fjölskyldusameiningu við flóttamenn frá palestínskum ríkisborgurum væru í vinnslu hjá stofnuninni en auk þeirra hefði mikill fjöldi umsókna borist frá Palestínumönnum sem ekki féllu undir réttinn til fjölskyldusameiningar samkvæmt lögum um útlendinga. Jafnframt biðu rúmlega 320 ríkisborgarar annarra ríkja eftir afgreiðslu umsókna um fjölskyldusameiningu við flóttamenn, einkum frá Sýrlandi, Sómalíu og Afganistan. Í ljósi þessa og að höfðu samráði við dómsmálaráðuneytið hafi verið ákveðið að umsóknir um fjölskyldusameiningar frá Palestínumönnum nytu ekki lengur forgangs fram fyrir umsóknir annarra. Loks var tilgreint að þetta gilti um umsóknir sem bærust frá og með 11. mars 2024.