77. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 19. júní 2020 kl. 13:08


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 13:08
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 13:08
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 13:08
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 13:08
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 13:08
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 13:08
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 13:08
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 13:08
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 13:08

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:08
Dagskrárlið frestað.

2) 714. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði landbúnaðar og matvæla vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu Kl. 13:08
Nefndin ræddi málið.

3) 944. mál - pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun og ríkisábyrgðir Kl. 13:40
Nefndin ræddi við Hörð Hilmarsson frá ÍT ferðum í gegnum fjarfundabúnað. Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi drög að frumvarpi til ferðaábyrgðarsjóðs.

4) 713. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði sjávarútvegs, fiskeldis, lax- og silungsveiði vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu Kl. 14:00
Nefndin ræddi málið.

5) 251. mál - lax- og silungsveiði Kl. 14:20
Nefndin ræddi málið.

6) Önnur mál Kl. 14:28
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:28