37. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 27. apríl 2016 kl. 15:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 15:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 15:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 15:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 15:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 15:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 15:00

Haraldur Benediktsson, Ásmundur Friðriksson og Páll Jóhann Pálsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:15
Fundargerðir 34. og 36. funda voru samþykktar.

2) 618. mál - tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi Kl. 15:15
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Elínu Ölmu Arthursdóttur og Ólaf Magna Sverrisson frá embætti ríkisskattstjóra.

3) 648. mál - niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar Kl. 15:45
Málið var afgreitt frá nefndinni með breytingartillögu. Undir nefndarálit rita: JónG, LRM, BjÓ, KLM, PJP, ÞórE.

4) 457. mál - veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald Kl. 16:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

5) Önnur mál Kl. 16:10
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:10