93. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 16. júní 2020 kl. 10:00


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 10:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 10:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 10:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 10:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 10:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 10:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 10:00

Smári McCarthy var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Steindór Dan Jensen
Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerðir 91. og 92. fundar voru samþykktar.

2) 610. mál - samkeppnislög Kl. 10:00
Samþykkt var að afgreiða málið til annarrar umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna utan Oddnýjar G. Harðardóttur og Jóns Steindórs Valdimarssonar sem sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Undir nefndarálit með breytingartillögu skrifuðu Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir, Brynjar Níelsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Willum Þór Þórsson. Oddný G. Harðardóttir og Jón Steindór Valdimarsson boðuðu að skilað yrði einu eða fleiri minnihlutaálitum.

3) 843. mál - Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins Kl. 10:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heimi Skarphéðinsson og Sigríði Valgeirsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

4) Önnur mál Kl. 11:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:15