59. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 12. maí 2023 kl. 10:10


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 10:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 10:10
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 10:10
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 10:10
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 10:10
Friðjón R. Friðjónsson (FRF), kl. 10:10
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 10:10
Indriði Ingi Stefánsson (IIS), kl. 10:10
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 10:10

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:10
Fundargerð 58. fundar var samþykkt.

2) 945. mál - kosningalög o.fl. Kl. 10:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hildi Lilliendahl Viggósdóttur og Pál Hilmarsson frá Reykjavíkurborg.

3) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um fjárskuldbindingar ráðherra - samantekt Kl. 11:07
Tillaga um að ljúka málinu með áliti var samþykkt.

4) Endurskoðun reglna um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar Kl. 11:10
Nefndin samþykkti að Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skipi undirnefnd sem fjalli um endurskoðun reglna um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar.

5) Önnur mál Kl. 11:11
Nefndin fjallaði um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Lindarhvol ehf.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:16