48. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, miðvikudaginn 24. apríl 2024 kl. 09:15


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:15
Eva Dögg Davíðsdóttir (EDD) 1. varaformaður, kl. 09:15
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG), kl. 09:15
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:15
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:15
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:15
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:19

Ásthildur Lóa Þórsdóttir boðaði forföll. Sigmar Guðmundsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Fundargerðir 46. og 47. fundar voru samþykktar.

2) Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Guðmundar Gunnarssonar og Magnúsar Davíðs Norðdahl gegn Íslandi Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Elínu Ósk Helgadóttur, Laufeyju Helgu Guðmundsdóttur og Þórhall Vilhjálmsson frá skrifstofu Alþingis.

3) 787. mál - stjórnsýslulög Kl. 09:52
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Davíð Þór Björgvinsson.

Tillaga um að Berglind Ósk Guðmundsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

4) Önnur mál Kl. 10:10
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:10