Lög um gjaldeyrismál og stjórnsýsla Seðlabanka Íslands við framkvæmd gjaldeyriseftirlits
(1510028)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
27.03.2019 | 39. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Lög um gjaldeyrismál og stjórnsýsla Seðlabanka Íslands við framkvæmd gjaldeyriseftirlits Á fundinn kom Gylfi Magnússon, formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands og svaraði spurningum nefndarmanna. Næst komu á fundinn Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Rannveig Júníusdóttir. Gerðu þau grein fyrir málinu og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
14.03.2019 | Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Lög um gjaldeyrismál og stjórnsýsla Seðlabanka Íslands við framkvæmd gjaldeyriseftirlits |
06.03.2019 | 34. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Lög um gjaldeyrismál og stjórnsýsla Seðlabanka Íslands við framkvæmd gjaldeyriseftirlits Á fundinn komu Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, Maren Albertsdóttir, aðstoðarmaður umboðsmanns, og Þorvaldur Hauksson lögfræðingur. Tryggvi kynnti málið og svaraði spurningum nefndarmanna ásamt sínum starfsmönnum. Fleira var ekki gert. |
11.05.2017 | 26. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Lög um gjaldeyrismál og stjórnsýsla Seðlabanka Íslands við framkvæmd gjaldeyriseftirlits. Á fundinn kom Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, og fór yfir forsögu málsins ásamt því að svara spurningum nefndarmanna. |
27.04.2017 | 22. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Lög um gjaldeyrismál og stjórnsýsla Seðlabanka Íslands við framkvæmd gjaldeyriseftirlits. Formaður gerði grein fyrir málinu og forsögu þess. Tillaga um að Hildur Sverrisdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt. Lilja Dögg Alfreðsdóttir greindi frá því við upphaf umfjöllunar að hún teldi sig ekki hæfa til að fjalla um málið vegna fyrri starfa fyrir Seðlabanka Íslands og vék af fundi undir þessum dagskrárlið. |
17.11.2015 | 16. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Bréf umboðsmanns Alþingis vegna athugunar á brotum á reglum um gjaldeyrishöft og lagagrundvelli fyrir flutningi verkefna Seðlabanka Íslands í einkahlutafélag Á fundinn komu Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, Sigríður Logadóttir, Ingibjörg Guðbjartsdóttir og Rannveig Júníusdóttir frá Seðlabanka Íslands og Lilja Sturludóttir og Leifur A. Skarphéðinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og gerðu grein fyrir viðbrögðum við ábendingum í bréfi umboðsmanns ásamt því að svara spurningum nefndarmanna. |
03.11.2015 | 12. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Bréf umboðsmanns Alþingis vegna athugunar á brotum á reglum um gjaldeyrishöft og lagagrundvelli fyrir flutningi verkefna Seðlabanka Íslands í einkahlutafélag Nefndin fjallaði um stöðu málsins og samþykkti tillögu Birgis Ármannssonar, framsögumanns málsins og 1. varaformanns um að fá fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytis og Seðlabanka Íslands á fund til að upplýsa nefndina um fyrstu viðbrögð við bréfi umboðsmanns. |
20.10.2015 | 10. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Bréf umboðsmanns Alþingis vegna athugunar á brotum á reglum um gjaldeyrishöft og lagagrundvelli fyrir flutningi verkefna Seðlabanka Íslands í einkahlutafélag Birgir Ármannsson 1. varaformaður lagði til að nefndin fengi á sinn fund fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytis og Seðlabankastjóra á fund nefndarinnar til að fá upplýsingar um viðbrögð þeirra við bréfi umboðsmanns sem var samþykkt. |
15.10.2015 | 9. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Bréf umboðsmanns Alþingis vegna athugunar á brotum á reglum um gjaldeyrishöft og lagagrundvelli fyrir flutningi verkefna Seðlabanka Íslands í einkahlutafélag Á fundinn komu Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis og Hafsteinn Dan Kristjánsson aðstoðarmaður umboðsmanns Alþingis. Tryggvi gerði grein fyrir efni bréfsins og svaraði spurningum nefndarmanna. |
13.10.2015 | 8. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Bréf umboðsmanns Alþingis vegna athugunar á brotum á reglum um gjaldeyrishöft og lagagrundvelli fyrir flutningi verkefna Seðlabanka Íslands í einkahlutafélag Birgir Ármannsson, 1. varaformaður, gerði grein fyrir málinu og tillögum að meðferð málsins í nefndinni sem nefndin ræddi. Samþykkt að óska eftir að umboðsmaður Alþingis kæmi á fund vegna málsins. |
08.10.2015 | 7. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Bréf umboðsmanns Alþingis vegna athugunar á brotum á reglum um gjaldeyrishöft og lagagrundvelli fyrir flutningi verkefna Seðlabanka Íslands í einkahlutafélag Formaður lagði til að Birgir Ármannsson 1. varaformaður færi yfir málið á næsta fundi og nefndin ræddi síðan meðferð málsins. Samþykkt. |