Samantekt um þingmál

Matvæli

110. mál á 143. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að skýra betur verkaskiptingu opinberra eftirlitsaðila á sviði matvælaeftirlits og útvíkka gjaldtökuheimildir.

Helstu breytingar og nýjungar

Auk þess að sinna ýmiss konar innflutningseftirliti með matvælum mun Matvælastofnun sjá um eftirlit með þeim aðilum, fyrirtækjum og einstaklingum sem flytja inn efni og hluti sem ætlað er að vera í snertingu við matvæli.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um matvæli nr. 93/1995.
  • Endurflutt: Matvæli, 622. mál (atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra) á 141. þingi (28.02.2013)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Efnislegar athugasemdir eru fáar en sitt sýnist hverjum um gagnsemi þessa frumvarps.

Aðrar upplýsingar

Matvælastofnun.



Síðast breytt 13.12.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.