Samantekt um þingmál

Ríkisendurskoðandi og endurskoðun ríkisreikninga

112. mál á 145. löggjafarþingi.
Forsætisnefndin.

Markmið

Heildarendurskoðun á gildandi lögum um Ríkisendurskoðun í þeim tilgangi meðal annars að styrkja frekar eftirlit þingsins með framkvæmdarvaldinu.

Helstu breytingar og nýjungar

Ríkisendurskoðandi verður kosinn af Alþingi í stað þess að vera ráðinn af forsætisnefnd. Kveðið er á um rétt til umsagnar um drög að skýrslum og aðgangur almennings að upplýsingum er rýmkaður. Gert er ráð fyrir að ríkisendurskoðandi greini forsætisnefnd frá umfangi beiðna og áætluðum skýrsluskilum og lagt er til að forsætisnefnd ákveði starfskjör ríkisendurskoðanda. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um Ríkisendurskoðun nr. 86/1997.
Lög um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins nr. 1/1997.
Lög um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga nr. 2/1997.

Kostnaður og tekjur

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Aðrar upplýsingar

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk
Bekendtgørelse af lov om revisionen af statens regnskaber m.m.(Rigsrevisorloven)  LBK nr 101 af 19/01/2012.

Noregur
Lov om Riksrevisjonen. LOV-2004-05-07-21.

Svíþjóð
Lag ( 2002:123) med instruktion för Riksrevisionen.

Finnland
Lag om statens revisionsverk 14.7.2000/676.




Síðast breytt 29.09.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.