Samantekt um þingmál

Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)

767. mál á 149. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að heimila þátttöku Íslands í samtökum um evrópska rannsóknarinnviði.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að innleidd verði reglugerð ráðsins (EB) nr. 723/2009 um lagaramma Bandalagsins um samtök um evrópska rannsóknainnviði (ERIC) ásamt reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1261/2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 723/2009. Einnig er kveðið á um skráningu, umsóknarferli um stofnun ERIC-samtaka á Íslandi eða þátttöku í ERIC-samtökum staðsettum erlendis og reglugerðarheimild ráðherra. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður og tekjur

Möguleg fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð geta verið tvenns konar, annars vegar vegna ERIC-samtaka á Íslandi og hins vegar vegna þátttöku Íslands í erlendum ERIC-samtökum erlendis. Á næstu árum verður kostnaður ríkissjóðs eingöngu vegna þátttöku Íslands í erlendum ERIC-samtökum og er áætlað að árlegur kostnaður verði 15-17,5 milljónir kr. en 48-50,5 milljónir kr. annað hvert ár.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar orðalagsbreytingum.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 723/2009 frá 25. júní 2009 um lagaramma Bandalagsins um samtök um evrópska rannsóknainnviði (ERIC).

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1261/2013 frá 2. desember 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 723/2009 um lagaramma Bandalagsins um samtök um evrópska rannsóknainnviði (ERIC).



Síðast breytt 12.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.