Samantekt um þingmál

Staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

708. mál á 150. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að einfalda framkvæmd fjárhagslegs stuðnings ríkisins við þjóðkirkjuna og auka sjálfstæði hennar í fjármálum og starfsmannamálum með því að einfalda lagaumhverfi fjárhagslegra tengsla ríkis og kirkju varðandi greiðslur til þjóðkirkjunnar úr ríkissjóði. Ráðstafanirnar eru í samræmi við viðbótarsamning milli þjóðkirkjunnar og íslenska ríkisins, sem undirritaður var 6. september 2019.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að Kristnisjóður, Jöfnunarsjóður sókna, Kirkjumálasjóður og héraðssjóðir verði aflagðir. Í stað sérstakra framlaga úr ríkissjóði til þessara sjóða kæmi árleg fjárhæð til þjóðkirkjunnar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997.
Lög um Kristnisjóð, o.fl., nr. 35/1970.
Lög um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987.
Lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993.

Við gildistöku laganna falla brott lög um kirkjumálasjóð, nr. 138/1993.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir fjárhagslegum áhrifum á ríkissjóð svo nokkru nemi verði frumvarpið óbreytt að lögum.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Viðbótarsamningur íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar og viljayfirlýsing frá 6. sept. 2019.


Síðast breytt 02.07.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.