Samantekt um þingmál

Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála o.fl.

735. mál á 153. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.

Markmið

Að ná auknum árangri á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna, byggðamála og sveitarstjórnarmála og hafa jákvæð áhrif á samfélagið allt með því að efla og samhæfa stefnumótun og áætlanagerð.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar sem miða að því að ná fram markmiðum um aukna samhæfingu og aukin gæði einstakra áætlana á málefnasviðum innviðaráðuneytisins, skarpari pólitíska aðkomu að stefnumótun og bætt samráð og samtal við almenning og hagsmunaaðila. Í frumvarpinu er markaður rammi um þessa nýju sýn í stefnumótun og verklagi við undirbúning og gerð áætlana á þessu sviði. Kemur það í stað ákvæða um gerð samgönguáætlunar, stefnumótunar á sviði húsnæðismála, og byggðaáætlunar í gildandi lögum en auk þess eru lagðar til breytingar á skipulagslögum er varða gerð tillögu að landsskipulagstefnu en breytingar eiga að fela í sér einföldun lagareglna á þessu sviði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um samgönguáætlun, nr. 33/2008, og lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir, nr. 69/2015. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, skiplagslögum, nr. 123/2010, og sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir beinum áhrifum á tekjur eða útgjöld ríkissjóðs.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.


Síðast breytt 21.08.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.