Breytingar á starfsáætlun
Forseti Alþingis hefur í samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka ákveðið að þingfundir verði fimmtudaginn 18. apríl og föstudaginn 19. apríl en samkvæmt starfsáætlun áttu báðir dagarnir að vera nefndadagar.
Þingfundir hefjast kl. 10:30 báða dagana. Nefndir geta fundað fyrir hádegi og fram að þingfundi báða dagana.