56. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, mánudaginn 3. júní 2024
kl. 09:31
Mætt:
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:31Eva Dögg Davíðsdóttir (EDD) 1. varaformaður, kl. 09:31
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:31
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG), kl. 09:31
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:31
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:31
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 10:08
Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Halla Signý Kristjánsdóttir boðuðu forföll.
Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:31
Dagskrárlið frestað.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Stefán Guðmundsson ráðuneytisstjóra, Kristínu Mörthu Hákonardóttur, Hafstein Pálsson, Sigríði Svönu Helgadóttur og Trausta Ágúst Hermannsson frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
3) 239. mál - Mannréttindastofnun Íslands Kl. 09:58
Nefndin fjallaði um málið.
Tillaga um að Eva Dögg Davíðsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.
4) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 10:25
Nefndin kannaði tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Elínar Írisar Fanndal sem hlaut kosningu sem 2. varaþingmaður á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, í alþingiskosningunum 25. september 2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Elínar Írisar Fanndal.
5) Önnur mál Kl. 10:26
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:26