Ferill 302. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
110. löggjafarþing 1987–88.
Nr. 13/110.
Þskj. 1110 — 302. mál.
Þingsályktun
um neyðarsíma.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta kanna með hvaða hætti unnt sé að koma fyrir neyðarsímum á torförnum fjallvegum og heiðum til öryggis fyrir vegfarendur og gera áætlun um kostnað.
Samþykkt á Alþingi 9. maí 1988.