Frestun á hækkun launa og búvöruverðs
Þriðjudaginn 01. nóvember 1988

     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Enn get ég vísað til þess sem ég hef sagt hér um önnur mál. Að vísu gildir það um þetta mál að hér er um að ræða frestun í einn mánuð og sá mánuður er liðinn, en að sjálfsögðu þarf málið að fá þinglega meðferð og legg ég til að að lokinni umræðu í deildinni verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn.