Júlíus Sólnes:
Herra forseti. Þessi sérstaki skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði er með ósanngjarnari skattaálagningu sem við þekkjum í þessu þjóðfélagi. Ég er algjörlega á móti því að atvinnurekstri sé mismunað með þessum hætti með skattlagningu á atvinnuhúsnæði. Hér er til þrautavara reynt að færa þetta til fyrra horfs þótt ég vildi hafa séð að þessi skattur hefði algjörlega verið felldur niður. Ég segi já.