Launavísitala
Miðvikudaginn 22. febrúar 1989

     Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Matthías Bjarnason):
    Herra forseti. Nál. var lagt inn fyrir u.þ.b. þremur stundarfjórðungum og átti að fylgja því fylgiskjal í þeim tilgangi að þingmenn gætu lesið. Úr þessu nál. sem hér er komið fram í öllum þessum önnum og bunugangi hefur fallið hér niður og ég vil alvarlega fara þess á leit að ekki sé keyrt svo hratt hér að ekki sé hægt að lesa yfir nál. og þau komi rétt fram. Ég vil ekki ræða nál. fyrr en það liggur fyrir.