Frv. til laga um breytingar á umferðarlögum
Föstudaginn 14. apríl 1989

     Forseti (Jón Helgason):
    Það var vegna beiðni hv. 6. þm. Reykn. sem ég var að reyna að ýta áfram þessu máli á þriðjudagskvöld. En það er búið að ræða það áður svo ég geri það ekki frekar. Hins vegar hafa komið fram beiðnir um að fleiri fyrstuumræðumál komi eins fljótt og hægt er á dagskrá þannig að það er ekki hægt að verða við öllu, en ég vonast til að deildarmenn séu samtaka um að reyna að greiða fyrir framgangi mála hér í dag eins og kostur er.