Ökunám og ökukennsla
Föstudaginn 05. maí 1989

     Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson):
    Hæstv. forseti. Á þskj. 1038 er nál. um till. til þál. um ökunám og ökukennslu frá allshn. Nefndin hefur fjallað um till. og borist umsagnir frá Ökukennarafélagi Íslands og Umferðarráði. Í ljósi þess að nýlega lauk störfum nefnd sem dómsmrh. skipaði 4. okt. 1988 til að fjalla um og gera tillögur um framtíðarskipan ökukennslu og ökuprófa í landinu. Leggur nefndin til að till. verði vísað til ríkisstjórnarinnar og það er í þessu tilfelli eins og hinu fyrra að allir nefndarmenn allshn. undirskrifa þetta nál.