Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Júlíus Sólnes:
    Virðulegi forseti. Ég vildi rétt aðeins vekja athygli á því að í brtt. á þskj. 1123 hefur nafn mitt af misgáningi ritast með þannig að ég stend ekki að brtt. Hún er flutt af meiri hl. Því miður náðist ekki að prenta upp nýtt þskj. Ég vildi að þetta kæmi fram þannig að það færi ekki inn í bækur þingsins að ég hafi staðið að þessari brtt. með meiri hl.