Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Júlíus Sólnes:
    Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. 2. þm. Norðurl. e. að það hefði í raun þurft að gera miklu meira til að reisa atvinnulífið úr þeirri rúst sem bæði fráfarandi og núverandi stjórn hafa sett það í. Þetta er hins vegar spor í rétta átt og það er því ekki rétt að standa gegn þeim breytingum sem koma fram með frv. Ég greiði ekki atkvæði.