Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Karl Steinar Guðnason:
    Herra forseti. Þar sem frv. þetta er þáttur í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um úrbætur hvað varðar atvinnulíf og fyrirheit til handa verkafólki í landinu sem skipta miklu máli og líka vegna þess að þær aðgerðir sem hér um ræðir stefna að jafnvægi í efnahagslífinu greiði ég frv. atkvæði og segi já.