Jöfnun á raforkukostnaði
Fimmtudaginn 18. maí 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið í máli þeirra sem hér hafa gert athugasemdir er þetta mál sem menn bera mjög fyrir brjósti. Ég vil taka það fram vegna þess sem hér hefur verið sagt að ég hef fullan hug á því að þingmenn fái að fylgjast með því sem unnið verður á næstu mánuðum að jöfnun orkukostnaðar í landinu og ég hlýddi sérstaklega á mál hv. 6. þm. Norðurl. e. í því sambandi.