Ferill 15. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 15 . mál.


Sþ.

15. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um leiðbeinendur og stundakennara í grunnskólum og framhaldsskólum.

Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur.



1.     Hvert er hlutfallið milli grunnskólakennara og leiðbeinenda í fræðsluumdæmum landsins miðað við fullt stöðugildi annars vegar og fjölda kennara hins vegar?
2.     Hvert er hlutfallið milli framhaldsskólakennara og leiðbeinenda í fræðsluumdæmum landsins miðað við fullt stöðugildi annars vegar og fjölda kennara hins vegar?
3.     Hve margir stundakennarar á hvoru skólastigi fyrir sig starfa án kennsluréttinda?
4.     Hve margir hinna réttindalausu stundakennara á hvoru skólastigi fyrir sig ná lægsta launaþrepi kennara?
5.     Hefur umsóknum fyrir leiðbeinendur verið synjað? Ef svo er, hve mörgum á hvoru skólastigi?
6.     Hve margir kennarar á hvoru skólastigi eru í launalausu leyfi skólaárið 1988–1989?
7.     Hver hefur fjöldi kennara í launalausu leyfi verið undanfarin fimm skólaár, sundurliðað eftir skólastigum?



Skriflegt svar óskast.