Ferill 45. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 45 . mál.


Sþ.

47. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um Lánasjóð íslenskra námsmanna.

Frá Guðmundi Ágústssyni.



1.     Hyggst menntamálaráðherra fella úr gildi breytingar á reglugerð nr. 578/1982, um námslán og námsstyrki, sem gerðar voru 3. janúar og 2. apríl 1986, þannig að þau ákvæði, sem áður giltu um framfærslukostnað, gildi að nýju?
2.     Ef svo er, hvenær mega námsmenn eiga von á að þær breytingar komi til framkvæmda?
3.     Telur menntamálaráðherra að breytingar þær, sem gerðar voru á reglugerðum um Lánasjóðinn á árinu 1986, standist gagnvart lögum?