Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 129 . mál.


Sþ.

136. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um mengun við fiskeldi.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



1.     Hvaða afskipti hefur landbúnaðarráðuneytið og stofnanir sem undir það heyra af:
. a.     veitingu starfsleyfa fyrir fiskeldi,
. b.     eftirliti varðandi mengun frá fiskeldi,
. c.     rannsóknum á mengunarhættu við fiskeldi?
2.     Hvaða reglur hefur ráðuneytið sett um mengunarvarnir vegna fiskeldis, þar með taldar reglur um förgun úrgangs?
3.     Hvaða reglur gilda um notkun lyfja og rotvarnarefna við fiskeldi?
4.     Hafa verið settar reglur til að koma í veg fyrir erfðamengun villtra fiskstofna frá eldisstofnum?
5.     Hvaða áform eru uppi á vegum ráðuneytisins vegna ofangreindra þátta?

Greinargerð.


    Í byrjun yfirstandandi þings bar fyrirspyrjandi fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra (13. mál) um mengun við fiskeldi. Svar ráðherra liggur fyrir á þskj. 36. Þar kemur m.a. fram að landbúnaðarráðuneytið og fleiri aðilar fjalli um vissa þætti er snerta mengun frá fiskeldisstöðvum. Um leið og vísað er til svars heilbrigðisráðherra er þessi fyrirspurn hér fram borin til að fá sem skýrasta mynd af málinu í heild.



Skriflegt svar óskast.