Ferill 169. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 169 . mál.


Sþ.

182. Tillaga til þingsályktunar



um ályktanir Vestnorræna þingmannaráðsins 1988.

Flm.: Friðjón Þórðarson, Alexander Stefánsson, Árni Gunnarsson,


Margrét Frímannsdóttir, Óli Þ. Guðbjartsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir.



    Alþingi ályktar að beina þeim tilmælum til ríkisstjórnarinnar að hún hrindi í framkvæmd ályktunum Vestnorræna þingmannaráðsins sem samþykktar voru á fundi þess í Ilulissat í júlí 1988 og prentaðar eru með ályktun þessari sem fylgiskjal.

Greinargerð.


    Hinn árlegi fundur Vestnorræna þingmannaráðsins var haldinn í Ilulissat (Jakobshavn) á Grænlandi 15.–20. júlí 1988.
    Ráðið var stofnsett í september 1985 í Nuuk á Grænlandi. Undirbúning að stofnun þess önnuðust þingmannanefndir kjörnar af Alþingi Íslendinga, Lögþingi Færeyinga og Landsþingi Grænlendinga.
    Hlutverk þingmannaráðsins er að annast samstarf þjóðþinga Færeyinga, Grænlendinga og Íslendinga og vinna að auknu samstarfi um sameiginleg hagsmunamál þjóðanna.
    Stofnskrá fyrir Vestnorræna þingmannaráðið var samþykkt á Alþingi 19. desember 1985. Ráðið hefur einungis tillögurétt til landanna þriggja, eins eða fleiri.
    Fulltrúar í íslensku þingmannanefndinni eru kjörnir af Alþingi til eins árs í senn. Einn fulltrúi frá hverjum þingflokki á sæti í þeirri nefnd.
    Hinir árlegu fundir eru haldnir í löndunum þrem til skiptis: Grænlandi, Íslandi og Færeyjum. Júlífundurinn var fjórði fundur ráðsins, en annar fundur þess á Grænlandi. Þennan fund sátu af hálfu Alþingis þingmennirnir Friðjón Þórðarson, sem er formaður Íslandsdeildar ráðsins, Alexander Stefánsson, Árni Gunnarsson, Óli Þ. Guðbjartsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon.
    Á fundinum var fjallað um sameiginleg hagsmunamál Íslands, Færeyja og Grænlands, m.a. á sviði menningarmála, samgöngumála, hafréttar- og
umhverfismála o.fl., og nokkrar samþykktir gerðar, sbr. fylgiskjöl.
    Fundurinn í Ilulissat fór fram með hefðbundnum hætti. Það er venja að formaður er valinn frá því landi þar sem fundurinn er haldinn hverju sinni.
    Formaður stjórnarinnar er nú Preben Lange, Grænlandi, en meðstjórnendur Friðjón Þórðarson, Íslandi, og Hans Jacob Debes, Færeyjum.
    Í almennum umræðum var lögð áhersla á að efla þetta samstarf þar sem svo miklir sameiginlegir hagsmunir eru í húfi, t.d. hvað varðar nýtingu auðlinda hafsins og umhverfismál. Enn fremur voru fundarmenn einhuga um að leitast við að efla samgöngur og viðskipti milli landanna.
    Á hinn bóginn kom það greinilega fram að tilgangslítið væri að koma saman einu sinni á ári og samþykkja margar ályktanir sem lítt væru kynntar og enn minna farið eftir.
    Á fundinum í Ilulissat voru samþykktar þær ályktanir sem prentaðar eru á fskj. I og ákveðið að þær yrðu lagðar fyrir þing og stjórn í hverju landi fyrir sig. Sendinefndir hvers lands skuldbundu sig til þess að sjá um að svo yrði gert, sbr. tilmæli ráðsins (nr. 1) á fskj. II.
    Gert er ráð fyrir að næsti fundur ráðsins verði haldinn á Íslandi í júnímánuði á næsta ári.



Fylgiskjal I.

Ályktanir Vestnorræna þingmannaráðsins


frá fundi þess í Ilulissat á Grænlandi í júlí 1988.



1.


Geislavirkur úrgangur undir hafsbotni.


    Vestnorræna þingmannaráðið beinir þeim tilmælum til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands að þær beiti sér kröftuglega gegn því að geislavirkum úrgangi verði komið fyrir undir hafsbotni eins og áformað er.

2.


Notkun freons.


    Þeim tilmælum er beint til stjórnvalda að innflutningur og notkun úðabrúsa með freoni sem þrýstiefni verði bönnuð og unnið verði áfram að frekari aðgerðum til þess að takmarka notkun freons og annarra efna sem eyða ósonlaginu.

3.


Loftflutningar með plúton.


    Þeim tilmælum er beint til stjórnvalda að loftflutningar með plúton yfir vestnorræn land- og hafsvæði verði bannaðir sem og millilendingar með efnið á því svæði.

4.


Eftirlit með mengun hafsins.


    Vestnorræna þingmannaráðið hefur þungar áhyggjur af vaxandi mengun sjávar frá iðnvæddum löndum og þeirri ógn við umhverfið sem stafar af aukinni slysahættu vegna hernaðarumsvifa á höfunum.
    Ráðið beinir þeim tilmælum til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands að þær komi sameiginlega á fót skrifstofu er samræmi það starf sem þegar er verið að vinna að við mælingar á mengun á vestnorrænum hafsvæðum og eigi jafnframt frumkvæði að öflugra starfi á þessu sviði. Skrifstofan komi upplýsingum beint til stjórnvalda í hverju landi um sig.
    Vestur-Norðurlönd setja þessa samstarfsskrifstofu á stofn í þeim tilgangi að viðhalda og vernda umhverfi í vestnorrænum löndum.
    Ráðið beinir þeim tilmælum til landanna hvers um sig að ræða nánara skipulag, þátttakendur og verk- og valdsvið slíkrar samstarfsskrifstofu.

5.


Skiptiferðir fyrir ungt fólk.


    Vestnorræna þingmannaráðið ítrekar fyrri samþykkt sína um skipulagðar skiptiferðir fyrir ungt fólk og beinir jafnframt þeim tilmælum til stjórnar ráðsins að það hrindi í framkvæmd ályktun ráðsins nr. 3/1987, svohljóðandi:
    „Vestnorræna þingmannaráðið hvetur landsstjórn Færeyja, landsstjórn Grænlands og ríkisstjórn Íslands til að ræða hvernig auðvelda megi ungu fólki að ferðast um vesturhluta Norðurlanda, hugsanlega með hinn svokallaða „norræna farseðil“ (Nordrejsekortet) sem fyrirmynd og enn fremur að kanna hvort samræma megi þessa tvenns konar ferðamáta.“

6.


Námsdvöl.


    Vestnorræna þingmannaráðið beinir þeim tilmælum til landsstjórnar Færeyja, landsstjórnar Grænlands og ríkisstjórnar Íslands að á hverju ári verði á
fjárlögum landanna gert ráð fyrir styrk handa námsmanni eða vísindamanni til að dveljast um eins árs skeið í öðru hvoru hinna landanna.

7.


Markaðssamstarf.


    Vegna þeirra miklu breytinga, sem væntanlegar eru á markaðsaðstæðum í Vestur-Evrópu, er æskilegt að löndin þrjú, Ísland, Grænland og Færeyjar, hefji nánara samstarf í útflutningsmálum.
    Vestnorræna þingmannaráðið telur æskilegt að ríkisstjórn Íslands og landsstjórnir Færeyja og Grænlands hefji virkt samstarf í viðræðum við Evrópubandalagið um gerð nýrra viðskiptasamninga.



Fylgiskjal II.

Vestnorræna þingmannaráðið:

Tilmæli til sendinefnda og stjórnvalda vestnorrænu landanna þriggja.


(Samþykkt í Ilulissat í júlí 1988.)



I.


    Sendinefndir á fundi ráðsins bera hver um sig ábyrgð á því að ályktanir ráðsins séu teknar á dagskrá í hverju þjóðþingi fyrir sig.

II.


    Í ljósi þess að framkvæmd ályktana ráðsins hefur ekki verið vandkvæðalaus, bæði meðferð þeirra og kostnaður við þær og með hliðsjón af þeim slæmu áhrifum sem þetta hefur á framtíð ráðsins og starfsemi þess, hvetur ráðið ríkisstjórn Íslands, landsstjórn Grænlands og landsstjórn Færeyja til að gera átak í að hrinda ályktunum í framkvæmd og veita nauðsynlegt fjármagn í því skyni. Vakin er athygli á slæmum afleiðingum þess að löggjafar- og framkvæmdarvald í hverju landi um sig fylgi ekki eftir ítrekuðum ályktunum ráðsins. Verði það ekki gert nær starfsemi ráðsins ekki þeim tilgangi sem henni var ætlaður við stofnun þess.



Prentað upp.