Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 172 . mál.


Sþ.

186. Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um greiðslukortaviðskipti.

Frá Guðrúnu Helgadóttur.



1.     Er ráðherra kunnugt um að viðskiptabankarnir hafi keypt greiðslunótur af kaupmönnum með talsverðum afföllum, allt að 30%?
2.     Ef svo er, hvert er viðhorf ráðherra til slíkra viðskipta?
3.     Hvað líður undirbúningi frumvarps um greiðslukorta- og afborgunarviðskipti sem boðað er í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar?