Ferill 190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 190 . mál.


Sþ.

223. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um störf ósonnefndar iðnaðarráðuneytisins.

Frá Friðriki Sophussyni.



    Hvað líður störfum nefndar sem iðnaðarráðherra skipaði hinn 15. júní sl. til að kanna notkun efna og efnasambanda, sem eyða ósonlaginu, og gera tillögur um hvernig draga megi úr notkun þeirra og áætla kostnað þar að lútandi?