Ferill 286. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 286 . mál.


Sþ.

518. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um verðjöfnunargjald af innveginni mjólk.

Frá Geir Gunnarssyni.



1.     Hversu háum fjárhæðum hefur verðjöfnunargjald á mjólk (sbr. lög nr. 95 11. des. 1981 og lög nr. 46/1985) numið á hverju áranna 1982–1988 á verðlagi ársins 1988?
2.     Hversu háar fjárhæðir hafa einstök mjólkurbú og mjólkurvinnslustöðvar fengið af verðjöfnunargjaldi á hverju áranna 1982–1988 á verðlagi ársins 1988:
. a.     heildarupphæðir í krónum,
. b.     í krónum á hvern mjólkurlítra?



Skriflegt svar óskast.