Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 304 . mál.


Sþ.

558. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um geislun í innfluttu grænmeti.

Frá Auði Eiríksdóttur.



1.     Er geymsluþol innflutts grænmetis aukið með geislun og sé svo, um hvers konar geisla er hér að ræða?
2.     Hefur geislað grænmeti skaðleg áhrif á heilsu manna?