Ferill 241. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 241 . mál.


Ed.

647. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um Seðlabanka Íslands, nr. 36 5. maí 1986.

Frá 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (VS, JE, KSG).



1.     1. gr. orðist svo:
.      8. gr. laganna breytist svo:
. a.     Við 1. mgr. bætist nýr málsliður svohljóðandi: Á sama hátt skal Seðlabanki Íslands láta sömu reglur, eða jafngildar, gilda um verðbréfasjóði með kaupskyldu á öruggum verðbréfum, einkum ríkisskuldabréfum, eftir því sem við getur átt.
. b.     4. mgr. orðist svo:
..      Seðlabankanum er enn fremur heimilt að setja innlánsstofnunum reglur um lágmark eða meðaltal lauss fjár sem þeim ber ætíð að hafa yfir að ráða. Með lausu fé er átt við íslenskan gjaldmiðil í sjóði, óbundin nettóinnlán í íslenskum gjaldmiðli í bönkum, heildareignir að frádregnum heildarskuldum, sem bundnar eru gengi erlendra gjaldmiðla, ríkisvíxla eða aðrar sambærilegar eignir.
. c.     Við bætist ný málsgrein er verði 5. mgr. og orðist svo:
..      Seðlabankanum er heimilt að setja innlánsstofnunum reglur um gengisbundnar eignir og skuldir þeirra (gjaldeyrisjöfnuð), svo og endurlánajöfnuð sem miði að því að hlutaðeigandi innlánsstofnanir skuli sjá til þess að slíkar eignir séu í jafnvægi þannig að gengisáhætta sé sem minnst. Seðlabankinn getur beitt innlánsstofnanir viðurlögum samkvæmt ákvæðum 41. gr. sé ákvörðunum bankans í þessum efnum ekki hlítt.
2.     Við 2. gr. bætist:
.      Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein sem verði 3. mgr. og orðist svo:
.      Hafi Seðlabanki Íslands hlutast til um vexti hjá innlánsstofnunum á grundvelli þessarar greinar getur bankinn, meðan sú íhlutun varir, að fengnu samþykki ráðherra, bundið ávöxtunarkröfur og annað endurgjald fyrir fjármagn í viðskiptum eignarleigufyrirtækja, verðbréfafyrirtækja og verðbréfasjóða takmörkunum sem miðast við hliðstæða áhættuflokka. Setur Seðlabankinn um það nánari reglur.
3.     Við bætist ný grein er verði 3. gr. og orðist svo:
.      33. gr. laganna orðist svo:
.      Sérstök endurskoðunardeild skal starfa við bankann undir umsjón bankaráðs. Auk þess skal endurskoðun hjá Seðlabanka Íslands framkvæmd af Ríkisendurskoðun og skoðunarmanni, sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn, og skal hann vera löggiltur endurskoðandi.