Ferill 224. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 224 . mál.


Ed.

649. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 77/1979, um Háskóla Íslands, sbr. l. nr. 8/1985.

Frá meiri hl. menntamálanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk til viðræðna um það þá Sigmund Guðbjarnason, rektor Háskóla Íslands, og Sveinbjörn Rafnsson, forseta heimspekideildar Háskóla Íslands.
    Það frumvarp, sem hér er um að ræða, fjallar um stöðuveitingar við Háskóla Íslands. Meginatriði frumvarpsins er að áhrif háskóladeildar eru aukin hvað stöðuveitingar varðar og vald ráðherra þrengist og er fyrst og fremst synjunarvald.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingartillaga meiri hl. miðar að því að kveða skýrar á um viss atriði í frumvarpinu. Efnislega er um þrjú atriði að ræða í breytingartillögu meiri hl.
    Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að ráðherra sé ekki heimilt að veita manni prófessorsembætti, dósentsstarf eða lektorsstarf við Háskólann nema meiri hluti dómnefndar telji hann hæfan og meiri hluti viðstaddra á deildarfundi greiði honum atkvæði. Breytingartillaga meiri hl. varðar ákvæðið um deildarfund því að í frumvarpinu var talað um meðmæli meiri hluta deildarfundar en í breytingartillögunni er kveðið skýrt á um að fyrir hendi þurfi að vera meðmæli meiri hluta viðstaddra á deildarfundi.
    Í öðru lagi er kveðið á um að ef háskóladeild þarf að kjósa milli fleiri en tveggja hæfra umsækjenda og enginn þeirra hlýtur meiri hluta við fyrstu atkvæðagreiðsluna þá skuli kosið á ný milli þeirra tveggja er flest atkvæði hlutu.
    Í þriðja lagi er kveðið skýrar á um synjunarvald ráðherra. Gert er ráð fyrir að ef menntamálaráðherra fellst ekki á tillögu deildarfundar skuli auglýsa embættið eða starfið að nýju.

Alþingi, 20. mars 1989.



Eiður Guðnason,

Danfríður Skarphéðinsdóttir,

Jón Helgason.


form., frsm.

fundaskr.



Skúli Alexandersson.

Guðmundur Ágústsson.

Valgerður Sverrisdóttir.