Ferill 391. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 391 . mál.


Sþ.

730. Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um ráðstafanir vegna stöðvunar hrefnuveiða.

Frá Karvel Pálmasyni.



    Hyggst ríkisstjórnin engar ráðstafanir gera til að rétta hlut þess fjölda einstaklinga sem orðið hefur fyrir fjárhagserfiðleikum vegna stöðvunar hrefnuveiða um alllangan tíma?