Ferill 399. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 399 . mál.


Sþ.

746. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um málefni Ölduselsskóla.

Frá Inga Birni Albertssyni og Hreggviði Jónssyni.



1.     Hvernig var staðið að könnun þeirri er ráðuneytið lét gera á samstarfsörðugleikum skólastjóra Ölduselsskóla annars vegar og kennara við skólann og foreldra barna þar hins vegar?
2.     Hverjar voru niðurstöður könnunarinnar?
3.     Hver er ástæða þess að ráðherra hefur ákveðið að auglýsa skólastjórastöðuna lausa til umsóknar?



Skriflegt svar óskast.