Ferill 414. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 414 . mál.
Nd.
881. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd.
(Eftir 2. umr. í Nd., 18. apríl.)
1. gr.
Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein sem verði 3. mgr., svohljóðandi:Í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum, sem eru í umsjá Náttúruverndarráðs, starfa landverðir er annast þar eftirlit og fræðslu. Ráðherra setur reglugerð um hæfi, menntun og starfsheimildir landvarða.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.