Ferill 405. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 405 . mál.


Ed.

915. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 29 29. apríl 1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.

Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og kallað á sinn fund Indriða H. Þorláksson frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og Sæbjörn Jónsson, Benedikt Sigurðsson og Gunnar Egilson frá Starfsmannafélagi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Halldór Blöndal var fjarverandi við lokaafgreiðslu málsins.
    Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fundi nefndarinnar og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 24. apríl 1989.



Eiður Guðnason,

Valgerður Sverrisdóttir,

Margrét Frímannsdóttir.


form., frsm.

fundaskr.



Jóhann Einvarðsson.

Ey. Kon. Jónsson.

Júlíus Sólnes.