Ferill 350. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 350 . mál.


Sþ.

971. Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Hreggviðs Jónssonar um staðfestingu á sáttmála Evrópuráðsins um sjálfsstjórn

    Sem svar við fyrirspurninni vill ráðuneytið skýra frá því að félagsmálaráðuneytið hefur kannað afstöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga til samningsins sem til þessa hefur einungis verið fullgiltur af einu Norðurlandaríki, þ.e. Danmörku. Samband íslenskra sveitarfélaga telur rétt að samningurinn verði fullgiltur. Nánar verður rætt um samninginn og þær ráðstafanir sem gera þarf til þess að geta fullgilt hann á samráðsfundi ríkis og sveitarfélaga sem haldinn verður 26. maí nk.