Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 980, 111. löggjafarþing 298. mál: afnám ýmissa laga um iðnaðar- og orkumál.
Lög nr. 33 12. maí 1989.
Þingskjal 980, 111. löggjafarþing 298. mál: afnám ýmissa laga um iðnaðar- og orkumál.
Lög nr. 33 12. maí 1989.
Lög um afnám ýmissa laga um iðnaðar- og orkumál.
1. gr.
Eftirtalin lög eru felld úr gildi:- Lög nr. 23 12. september 1917, um heimild handa bæjar- og sveitarstjórnum til að taka eignarnámi eða á leigu brauðgerðarhús o.fl.
- Lög nr. 22 13. janúar 1938, um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að fyrirskipa blöndun á þurrmjólk í brauð í brauðgerðarhúsum, og til þess að ákveða hámarksverð á brauði og þurrmjólk.
- Lög nr. 21 5. apríl 1971, um olíuhreinsunarstöð á Íslandi.
- Lög nr. 49 29. maí 1957, um Tunnuverksmiðjur ríkisins.
- Lög nr. 46 14. maí 1974, um stofnun undirbúningsfélags fiskkassaverksmiðju.
- Lög nr. 107 31. desember 1971, um undirbúning þörungavinnslu að Reykhólum.
- Lög nr. 107 27. desember 1973, um þörungavinnslu við Breiðafjörð, með breytingu gerðri með lögum nr. 14 23. maí 1975.
- Lög nr. 59 4. júní 1981, um stálbræðslu.
- Lög nr 45 30. júní 1942, um sérleyfi til þess að veita raforku frá Sogsvirkjuninni til Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar.
- Lög nr. 28 16. apríl 1971, um virkjun Svartár í Skagafirði.
- Lög nr. 105 31. desember 1974, um virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 28. apríl 1989.