Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 203 . mál.


Nd.

1028. Nefndarálit



um frv. til l. um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk til fundar við sig eftirtalda: Frá menntamálaráðuneytinu Örlyg Geirsson skrifstofustjóra og Hákon Torfason deildarstjóra, frá Fóstrufélagi Íslands Selmu Dóru Þorsteinsdóttur, formann FÍ, og Örnu Jónsdóttur, formann fulltrúaráðs FÍ, og fræðslustjórana Helga Jónsson og Guðmund Inga Leifsson. Þá störfuðu þeir Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, og Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ, með nefndinni.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingar þessar eru gerðar í samráði við þá aðila er nefndin kallaði á sinn fund og nefndir eru hér á undan. Hér er þó ekki um veigamiklar efnisbreytingar að ræða og í öllum meginatriðum fellst nefndin á afgreiðslu efri deildar á frumvarpinu.
    Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum sem fram kunna að koma.

Alþingi, 2. maí 1989.



Jón Sæmundur Sigurjónsson,

Guðrún Helgadóttir,

Alexander Stefánsson.


form., frsm.

fundaskr.



Geir H. Haarde.

Eggert Haukdal.

Jón Kristjánsson.



Kristín Einarsdóttir.