Ferill 284. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 284 . mál.


Nd.

1201. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 33/1922, um rétt til fiskveiða í landhelgi Íslands.

Frá meiri hl. sjávarútvegsnefndar.



    Nefndin hefur rætt frumvarp þetta sem felur í sér að færeysk og grænlensk fiskiskip verði undanþegin ákvæðum laga er banna erlendum fiskiskipum að landa afla sínum í íslenskum höfnum nema með sérstöku leyfi ráðherra.
    Nefndin fékk til viðræðna um frumvarpið Jón B. Jónasson, skrifstofustjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, og Stefán Friðfinnsson, aðstoðarmann utanríkisráðherra. Þá lágu fyrir nefndinni umsagnir um frumvarpið frá síðasta þingi frá Sjómannasambandi Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandinu, Félagi ísl. fiskimjölsframleiðenda, Landssambandi ísl. útvegsmanna og Fiskifélagi Íslands.
    Meiri hl. nefndarinnar mælir með því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Minni hl. skilar séráliti.

Alþingi, 16. maí 1989.



Árni Gunnarsson,

Matthías Bjarnason,

Alexander Stefánsson,


form.

frsm.

með fyrirvara.



Kristinn Pétursson.

Kolbrún Jónsdóttir.

Geir Gunnarsson.







Prentað upp.