Ferill 210. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 210 . mál.


Nd.

1269. Nefndarálit



um frv. til l. um lánskjör og ávöxtun sparifjár.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur athugað frumvarpið á fundum sínum og telur að í því sé að finna mjög þarfa ábendingu um afnám lánskjaravísitölu.
    Ríkisstjórnin hefur ákveðið í stjórnarsáttmála sínum að koma í veg fyrir víxlhækkun verðlags og lánskjara. Það verður ekki gert nema með afnámi lánskjaravísitölu. Þess vegna leggur nefndin til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 19. maí 1989.



Páll Pétursson,

Matthías Bjarnason,

Ragnar Arnalds.


form., frsm.

með fyrirvara.



Guðmundur G. Þórarinsson.