Ferill 418. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 418 . mál.
Nd.
1287. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 73 frá 28. maí 1969, um Stjórnarráð Íslands.
Frá meiri hl. allsherjarnefndar (JK, SighB, GeirG, GuðnÁ).
1. Við 3. gr.
. a. Í 1. efnismgr. 3. gr. falli niður orðin „eða deildarstjóra“.
. b. Á eftir orðinu „aðstoðarráðuneytisstjóri“ í 2. efnismgr. komi orðin: er staðgengill og.
. c. í 4. efnismgr. falli niður orðin „eða deildarstjóri“.
. d. Í stað orðanna „skrifstofustjóra og deildarstjóra“ í síðustu málsgrein komi: og skrifstofustjóra.
2. Í síðari málsgrein 5. gr. falli brott orðin „til sama tíma“.
3. 6. gr. orðist svo:
. Lög þessi öðlast þegar gildi. 1. gr. laga þessara öðlast þó ekki gildi fyrr en 1. janúar 1990.